Hvítfiskur
Breitt vöruúrval
Við bjóðum upp á breitt vöruúrval af bæði ferskum og frosnum hvítfiski. Við eigum til helstu vörunúmer allt árið um kring. Flök, bita, hnakka o.s.frv.
Einnig reykjum við og söltum okkar eigin fisk sem hefur reynst vinsælt meðal okkar viðskiptavina.
þORSK- og ýsubitar
Við eigum alltaf til nóg af þorsk- og ýsubitum. Við vinnum náið með útgerðum landsins og sendum hvert á land sem er.
Léttsaltaðir þorskhnakkar
Léttsaltaðir þorskhnakkar er ein af okkar allra vinsælustu vörum. hnakkarnir eru sprautusaltaðir og er hver hnakki vaccum-pakkaður.
Saltfiskbitar
Útvatnaðir saltfiskbitar með roði eru mjög vinsælir í okkar vöruúrvali.
Reykt ýsuflök
Við reykjum ýsuflök á Akranesi í reykofnum okkar. Farið er eftir gamalli uppskrift sem klikkar ekki.