Norðanfiskur · frá 2001
Gæði í 25 ár
Sjávarafurðir fyrir heimili, verslanir, stóreldhús og veitingastaði um allt land.
Hágæða vörur úr matarkistu norðursins
Norðanfiskur er framleiðslufyrirtæki sem sérhæfir sig í að vinna sjávarafurðir fyrir innanlandsmarkað og selur afurðir sínar til verslana, stóreldhúsa og veitingastaða. Fyrirtækið var stofnað á Akureyri 2001 en flutti starfsemina til Akraness tveimur árum síðar þegar það sameinaðist fyrirtækinu Íslenskt-franskt eldhús undir merkjum Norðanfisks. Norðanfiskur er einnig stór innflutnings- og heildsöluaðili á hinum ýmsu sjávarafurðum og má þar nefna humar, krabba, risarækju, túnfisk og fleira. Höfuðstöðvar Norðanfisks eru á Akranesi en einnig er starfrækt sölu- og þjónustudeild við Tangarhöfða í Reykjavík.
Við stöndum fyrir gæði, fagmennsku og traust
Norðanfiskur sérhæfir sig í vinnslu sjávarafurða fyrir neytendamarkað innanlands og framleiðir hágæða vörur fyrir verslanir, stóreldhús og veitingastaði.
Fyrirtækið er jafnframt stór innflutnings- og heildsöluaðili á ýmsum sjávarafurðum sem koma erlendis frá, s.s. humar, krabbi, risarækja, túnfiskur o.fl. Hjá Norðanfiski starfa 28 starfsmenn sem allir hafa mikilvægt hlutverk og mynda öfluga og samheldna liðsheild, hvort sem um er að ræða framleiðslu á vörum eða þjónustu við viðskiptavini.
Gæða hráefni

Við vinnum bæði með ferskan sjávarafla úr hafinu við Ísland og innfluttar gæðavörur.
Reynsla og fagmennska

Vinnslan byggir á áratuga þekkingu og persónulegri nálgun þar sem hvert smáatriði skiptir máli.
Áreiðanleg afhending

Við tryggjum stöðugleika í magni og afhendingu fyrir verslanir og veitingastaði um allt land.

Við hlökkum til að sjá ykkur!
Norðanfiskur verður á Stóreldhúsasýningunni í Laugardalshöll dagana 5. og 6. nóvember 2026.
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á básinn okkar þar sem við tökum vel á móti gestum, spjöllum um vörurnar okkar og kynnum það sem Norðanfiskur hefur upp á að bjóða.
Komdu við, heilsaðu upp á okkur og fáðu að kynnast Norðanfiski betur.

Við hlökkum til að sjá ykkur!
Norðanfiskur verður á Stóreldhúsasýningunni í Laugardalshöll dagana 5. og 6. nóvember 2026.
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á básinn okkar þar sem við tökum vel á móti gestum, spjöllum um vörurnar okkar og kynnum það sem Norðanfiskur hefur upp á að bjóða.
Komdu við, heilsaðu upp á okkur og fáðu að kynnast Norðanfiski betur.
Gæðavörur í 25 ár
Í gegnum árin höfum við þróað vöruúrval sem þjónar bæði heimilum og fagfólki.
Ný uppskrift í hverri viku
Prófaðu ferska, einfalda og bragðgóða rétti sem tekur stutta stund að útbúa.
Vörurnar okkar
Við framleiðum ferskar og unnar fiskafurðir í stöðugum gæðum, með fjölbreyttum pakkningarmöguleikum og magnstærðum.
Lax og Bleikja
Hvítfiskur
Brauðaðar vörur
Humar
Rækjur
Skelfiskur




