Plokkfiskur  

Það er kúnst að gera góðan plokkfisk. Hér lumum við á skotheldri uppskrift af plokkfisk sem ætti ekki að svíkja neinn.

Uppskrift fyrir 4

Innihald

800 g þorskur/ýsa
½ laukur, skrældur og saxaður
½ teningur kjúklingakraftur
2 stk lárviðarlauf
50 g smjör
300 g kartöflur, skrældar og skornar í teninga
½ tsk hvítur pipar
1 tsk salt
3 msk hveiti
200 ml mjólk

Aðferð

  • Setjið fiskinn ásamt lauknum og lárviðarlaufunum í pott með köldu vatni og fáið upp suðu, takið síðan af hitanum og setjið til hliðar.
  • Bræðið smjör og bætið hveitinu út í og hrærið vel saman.
  • Hellið mjólkinni út í og setjið með 100 ml af vatninu sem fiskurinn stendur í.
  • Bætið kjúklingakraftinum, saltinu og piparnum út í og fáið upp suðu eða þar til sósan er orðin vel þykk.
  • Sigtið fiskinn (passa að hafa laukinn með) og bætið út í sósuna ásamt kartöflunum og blandið vel saman.
  • Smakkið til með salti og pipar.

25-35 mín